Laugardaginn 29.júlí fórum við í hvalaskoðun á Dalvík... þetta varð reyndar ekki hvalaskoðun heldur bara skoðun... Sáum ekki eitt stykki hval :-)
Samt sem áður var mjög gaman, veðrið yndislegt og félagskapurinn sömuleiðis.
Þann 25.júlí átti ég frí í vinnunni. Árni minn ákvað að koma mér á óvart og tók sér frí líka... og bauð mér í smá útreiðatúr.
Á leiðinni stoppuðum við í Laufási og hoppuðum svo á bak að Grýtubakka.
...þetta var fyrsta sinn sem ég fer á hestbak :-D
Og er mér sagt að ég hafi bara staðið mig með ágætum.
Því miður náðust engar myndir af mínum fagra manni á baki.. en hann tók sig einstaklega vel út !
Ásdís og Födda skipulögðu konupartý í tilefni dagsins (kallarnir fengu líka að vera smá með). Amma var sótt á limósínu og svo var haldið á Hótel Holt þar sem við gyðjurnar snæddum dýrindis kvöldverð.
Ásta kom í heimsókn til okkar helgina 14.- 16.júlí. Það var yndislegt að hitta hana loksins. Matjaz, frændi Árna, kom daginn á undan Ástu og verður hjá okkur í 6 vikur.
Föstudagskvöldið var auðvitað tekið með trompi... Og voru nokkur augnablik fest á filmu.
Contains 11 items, last updated on 06/05/06 Last comment 06/05/06.
Jæja, loksins komnar myndir af slotinu.
Um miðjan maí fengum við Árni afhent húsið okkar að Gránufélagsgötu 33, Akureyri. Kallað Hinrikshús.
Húsið var byggt 1917, og svo byggt við 1923. Það er alveg nýuppgert , svo við þurftum lítið að gera.
Til gamans má geta að þegar Halldór Laxness bjó á Akureyri, bjó hann í þessu húsi :)
Nokkrar myndir frá Grænlandsferðinni í apríl. Þær voru ábyggilega rúmlega hundrað.. ég valdi bara nokkrar úr.
Þetta var alveg frábær ferð, þó að veðrið hafi ekki verið 100%. Get ekki beðið eftir að fara aftur á næsta ári :)
Þegar sköpunargleðin grípur hann Árna má við öllu búast.
Hann safnaði skeggi meðan hann var á Grænlandi, ansi gróskulegt hjá honum. Það fékk svo að fjúka um daginn með ýmsum tilbrigðum.
Nýju ári var fagnað að Björgum. Ingi, Erla María og Hlynur kíktu í heimsókn.
Ég og Árni sáum alfarið um eldamennskuna. Á boðstólnum var risa kalkúnn með öllu tilheyrandi, sem var svo góður að enginn hafði pláss fyrir eftirréttinn fyrr en daginn eftir :)
Contains no items, last updated on 10/14/09 Last comment 06/05/06.
It only reserve, no more, acheter viagra, [url="http://cgi1.ebay.fr/eBayISAPI.dll?ViewUserPage&userid=acheter_viagra_ici_0.7euro"]acheter viagra[/url], http://cgi1.ebay.fr/eBayISAPI.dll?ViewUserPage&userid=acheter_viagra_ici_0.7euro acheter viagra, 31718, edit